Já maður er nú bara enn orðlaus eftir þessa
helgi
Tónleikarnir voru alveg geggjaðir! og bara upplifun
að fara á svona alvöru tónleika í svona
HUGE höll!!! vá þetta var alveg magnað

Og Bon Jovi sjálfur úffffff.....
aldrei séð annað eins!
hrikalega var hann flottur vá!!

Náði nokkrum ágætum myndum og videoum
Nú þarf
maður bara að fara að finna fleiri tónleika til að fara á! 
Eftir tónleikana þá skelltum við okkur á
TEQUILA BEACH en við höfðum aldrei farið þangað
áður! Og ég er nú ekki frá því að við séum búnar að finna
The place. Geggjuð tónlist og bara kúl staður

Svo tókum við leigubíl að metro stöðinni minni en
þar geymdum við bílinn og vitið hvað mér tókst!!!
hahahahaha.....
Við vorum að hlaupa yfir götuna og ég í
kúrekastígvélunum mínum sem eru ansi sleip og haldiði ekki að ég
hafi dottið útá MIÐRI götu og lenti á rassinum!!!
Ég gat
varla staðið upp ég hló svo mikið og Lóa var í keng útí kanti
hahaha.... Svo stoppaði e-r gaur til að spyrja hvort ég væri ok!!
hahahah.... Ég hélt að ég myndi kafna!
Við hlógum eins og svín allt kvöldið! hef sjaldan
hlegið svona mikið.
Lóa kafnaði næstum á dansgólfinu því að
það var e-r ógeðslegur gaur að reyna að dansa við mig og það var
alveg sama hversu mikið ég sneri mér og færði mig hann var alltaf
fyrir aftan mig!! og Lóa náttla bara hló og hló og hló og hló!!

Alla vegana þá var þetta alveg snilldar kvöld í
alla staði! 
TAKK LÓA MÍN!
Guðbjörg er komin núna og það styttist ansi mikið
í að við komum heim
Við ætlum bara e-ð að skvísast og hafa
það gott í 3daga 
Við sjáumst!